Gjaldskrá
Meðfylgjandi er gjaldskrá Bonafide lögmanna.
Vakin er athygli á því að í ákveðnum málum kann að vera mögulegt að óska eftir gjafsókn eða eftir atvikum að fá réttaraðstoð úr tryggingum. Ef mál eru þess eðlis að þau kunni að fullnægja skilyrðum til gjafsóknar eða réttaraðstoðar aðstoðum við umbjóðendur við að kanna rétt þeirra.
Hægt er að óska eftir því að samið verði sérstaklega um verð í tengslum við ákveðin verk.
Tímagjald:
Tímagjald hjá Bonafide lögmönnum er kr. 32.500 til kr. 48.500 pr. klukkustund.
Bonafide lögmenn áskilja sér rétt til að bæta við álagi á tímagjald í ákveðnum tilfellum, t.d. þegar vinnu þarf að inna af hendi með mjög stuttum fyrirvara, á frídögum, á erlendu tungumáli o.þ.h.
Gjald fyrir mót (mætingu) við fyrirtöku á dómsmáli, aðför, nauðungarsölumeðferð, kyrrsetningu, lögbanns- eða löggeymslugerðir og útburðar- og innsetningaraðgerðir er kr. 23.500.- auk virðisaukaskatts.
Tímagjald vegna vinnu fyrir erlenda aðila er EUR 310 – 450.
Málflutningur:
Ef ekki er samið um tímagjald, þar sem munnlegur flutningur fer fram eða gagnaöflun fer fram eftir þingfestingu, skal þóknun vera sem hér segir:
Grunngjald skal vera kr. 350.000 auk 15% af stefnufjárhæð og vöxtum, allt að kr. 6.000.000, 10% af næstu 10.500.000 og 7,5% af því sem umfram er.
Reikna skal þóknun af samanlagðri fjárhæð höfuðstóls og vaxta.
Þóknun fyrir málflutning getur aldrei orðið lægri en sem nemur tímagjaldi skv. tímaskráningu Bonafide lögmanna.
Dæmdur málskostnaður hefur ekki áhrif á þóknun lögmanns, nema um það sé sérstaklega samið.
Ýmis skjalagerð:
Þóknun fyrir skjalagerð við stofnun félaga er kr. 130.000 auk umsamins tímagjalds.
Þóknun fyrir gerð erfðaskrár er kr. 60.000 auk umsamins tímagjalds.
Þóknun fyrir gerð kaupmála er kr. 70.000 auk umsamins tímagjalds.
Þóknun fyrir gerð húsaleigusamninga er kr. 60.000 auk umsamins tímagjalds.
Þóknun fyrir gerð skuldabréfa, tryggingabréfa, veðleyfis, veðbandalausnar, umboðs og sambærilegra skjala er kr. 70.000.
Afrit af gögnum til hlutaðeigandi aðila eftir að máli er lokið kostar kr. 10.000.
Annað:
Bonafide lögmenn áskilja sér rétt á að krefjast fyrirframgreiðslu á hluta þóknunar, áður en vinna við mál hefst.
Almennar innheimtur:
Þóknun fyrir innheimtuþjónustu
Þóknun lögmannsstofunnar fyrir innheimtu peningakrafna er samkvæmt neðangreindri gjaldskrá. Gjaldskráin ákvarðar heildarþóknun sem umboðsgjafi (kröfuhafi) greiðir fyrir þjónustuna.
- Grunngjald: kr. 50.000
- Viðbótarþóknun (reiknast af samanlagðri fjárhæð höfuðstóls og vaxta):
- af kröfum að kr. 100.000: 25%
- af kröfum frá kr. 100.001 – 600.000: 10%
- af kröfum frá kr. 600.001 – 6.300.000: 5%
- af kröfum frá kr. 6.300.001 og umfram: 3%
Ath.: Allar fjárhæðir í gjaldskrá eru án virðisaukaskatts, sem bætist við heildarþóknun.
Skýringar á gjaldskrá og ábyrgð á innheimtukostnaðiHeildarþóknun og endurheimta frá skuldara:Gjaldskrá skilgreinir samningsbundið endurgjald lögmannsstofunnar fyrir unna vinnu. Lögmannsstofan mun ávallt leitast við að endurheimta innheimtukostnað frá skuldara að því marki sem lög og reglur heimila á hverjum tíma. Sá kostnaður sem innheimtist frá skuldara gengur til frádráttar heildarþóknun lögmannsstofunnar.
Lagalegar takmarkanir á kostnaði sem leggja má á skuldara: Umboðsgjafa er kunnugt um að strangar lagalegar takmarkanir gilda um fjárhæð þess kostnaðar sem heimilt er að krefja skuldara um, og er sá kostnaður oft verulega lægri en heildarþóknun samkvæmt gjaldskrá þessari.
- Frum- og milliinnheimta:Á þessum stigum er óheimilt að leggja prósentugjöld á skuldara. Kostnaður takmarkast við fastar, lágar fjárhæðir fyrir hverja aðgerð (t.d. innheimtubréf) í samræmi við reglugerð nr. 37/2009. Mismunurinn á heildarþóknun lögmannsstofunnar og þeirri fjárhæð sem fæst innheimt hjá skuldara fellur því á umboðsgjafa.
- Löginnheimta: Ef grípa þarf til löginnheimtu (t.d. aðfarar) er heimilt að krefja skuldara um hærri kostnað. Endanleg ákvörðun um fjárhæð þess kostnaðar er þó í höndum sýslumanns eða dómstóla sem meta hófleika hans. Ekki er tryggt að þóknun samkvæmt gjaldskrá fáist að fullu endurgreidd frá skuldara
- Endanleg greiðsluábyrgð umboðsgjafa (kröfuhafa): Umboðsgjafi ber ávallt fulla og endanlega ábyrgð á greiðslu heildarþóknunar til lögmannsstofunnar samkvæmt gjaldskrá þessari, óháð því hvort innheimta tekst. Umboðsgjafi ber því ábyrgð á:
- Öllum kostnaði ef innheimta reynist árangurslaus eða ef fallið er frá henni.
- Þeim hluta þóknunar sem ekki fæst endurheimtur frá skuldara (umframkostnaður).
- Útlagður kostnaður: Auk þóknunar samkvæmt gjaldskrá ber umboðsgjafi ábyrgð á greiðslu alls beins, útlagðs kostnaðar sem hlýst af innheimtunni, svo sem aðfarargjalda, birtingakostnaðar, þinglýsingargjalda og annarra sambærilegra gjalda. Lögmannsstofan mun leitast við að endurheimta slíkan kostnað frá skuldara, en hann fellur á umboðsgjafa ef það tekst ekki
Innheimtuþóknun skal reikna af samanlagðri fjárhæð höfuðstóls og vaxta nema um annað sé samið.
Útlagður kostnaður:
Greiða skal allan útlagðan kostnað til viðbótar við tímagjald, þar með talinn ferða- og aksturskostnað og kostnað vegna opinberra gjalda, læknisvottorða og matsgerða. Greiði Bonafide lögmenn útlagðan kostnað er heimilt að leggja allt að 10% álag ofan á fjárhæðina.
Virðisaukaskattur:
Við allar fjárhæðir bætist virðisaukaskattur eins og hann er á hverjum tíma.
Séu ekki gerðar athugasemdir við reikning innan 20 daga frá útgáfu, telst hann samþykktur.
Reykjavík, 1. mars 2026
Bonafide lögmenn