Um okkur

Bonafide lögmenn er lögmannsstofa sem var stofnuð árið 2009. Hjá Bonafide lögmönnum starfar einn lögmaður og lögfræðingur auk skrifstofustjóra. Lúðvík Bergvinsson lögmaður er með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum, Landsrétti og Hæstarétti.  Sigurvin Ólafsson starfar í dag sem lögfræðingur hjá Bonafide lögmönnum. 

Starfsfólk stofunnar sinnir málum á flestum sviðum lögfræðinnar fyrir einstaklinga, fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög og erlenda aðila. Í öllum sínum störfum hafa Bonafide lögmenn að leiðarljósi fagmannleg og metnaðarfull vinnubrögð, heiðarleika og virðingu fyrir viðskiptavininum.

Sérstök áhersla er lögð á skapandi vinnubrögð og samvinnu við að finna lausnir í þeim verkefnum sem starfsmenn stofunnar fást við. Gleði, góður liðsandi, samheldni og samvinna starfsfólks eru mikilvægir þættir í daglegu starfi Bonafide lögmanna. 

Fólkið okkar

Lúðvík Bergvinsson

Lögmaður

ludvik@bonafide.is

Sigurvin Ólafsson

Lögfræðingur

sigurvin@bonafide.is

Þóra Gunnarsdóttir

Skrifstofustjóri

thora@bonafide.is